Íþróttabandalag Hafnarfjarðar

Vel heppnaður fundur um stjórnir íþróttafélaga

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

IMG_0005Fimmtudaginn 6. maí var haldinn opinn fundur í samvinnu  Íþrótta- og tómstundanefndar Hafnarfjarðarbæjar og Íþróttabandalags Hafnarfjaðar í Álfafelli Íþróttahúsinu við Strandgötu undir yfirskriftinni „Konur í stjórnir íþrótta- og tómstundafélaga“.

Undanfarin ár hafa Hafnarfjarðarbær og íþróttahreyfingin í Hafnarfirði unnið saman að jafnréttismálum. Reglulega eru unnar kannanir um jafnréttismál og í þeim hefur komið í ljós að þátttaka kvenna í stjórnum íþróttafélaga og deilda þeirra er frekar lítil eða 28%. Brottfall hafnfirskra stúlkna í 9. og 10. bekk úr skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi er hærra en í nágrannasveitarfélögunum og landsmeðaltalið og var Viðar Halldórsson lektor við HR fenginn til að gera ítarlega skýrslu um brottfallið og koma með tillögur til úrbóta. Á fundinum greindu þær Helga Steinunn Guðmundsdóttir fyrrverandi formaður KA og núverandi stjórnarmaður í framkvæmdastjórn ÍSÍ, Ágústa Hera Birgisdóttir formaður Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar og Ingibjörg Hinriksdóttir fyrrverandi stjórnarmaður í KSÍ frá reynslu sinni í stjórnarstörfum innan íþróttahreyfingarinnar. Ólík reynsla kveikti á líflegum og skemmtilegum umræðum á milli erinda og í lok fundar. Niðurstaða fundarins var eftirfarandi, stjórnarfólk í íþróttahreyfingunni verður að búa yfir miklum mannauði og víðsýni til þess að „laða“ aðra með sér til sjálfboðaliðastarfa fyrir íþróttahreyfinguna. Þrátt fyrir mikla vinnu og oft erfiði er stjórnarfólk tilbúið til að leggja þetta á sig af því starfið er bæði gefandi og skemmtilegt. Starfið í stjórnum íþróttahreyfingarinnar leiddi til tryggra vináttubanda við aðra. Gæta verður að fjölbreytileika við samsetningu stjórnar. Fyrirmyndarstjórn hefur gildi eins og jákvæðni, samvinnu og jafnrétti að leiðarljósi. Stúlkur / konur verða að eiga sér málssvara þar sem ákvarðanir eru teknar. Sjálfsstyrking stúlkna / kvenna er mikilvæg bæði fyrir iðkendur og stjórnarfólk. Konur festast oft á lægri stjórnstigum í íþróttahreyfingunni. Mikilvægt að hrinda hugmyndum í framkvæmd til að stuðla að framförum. Vantar leiðtoganámskeið fyrir hafnfirsk íþróttafélög.