Íþróttabandalag Hafnarfjarðar

Hjólað í vinnuna er hafið

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ "Hjólað í vinnuna" hófst í gær með opnunarhátíðum bæði í Reykjavík og á Akureyri. Meginmarkmið "Hjólað í vinnuna" er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Nánar um opnunarhátíðirnar er á heimasíðu ÍSÍ www.isi.is. Ítarlegar upplýsingar um verkefnið er að finna á heimasíðu verkefnisins www.hjoladivinnuna.is og eru allir sem tök hafa á hvattir til þátttöku í verkefninu.