
Íþróttakarl og Íþróttakona Hafnarfjarðar 2009 Davíð Þór Viðarsson knattspyrnumaður FH og Hanna Guðrún Stefánsdóttir handknattleikskona Haukum
Íþróttakona Hafnarfjarðar 2009 er Hanna Guðrún Stefánsdóttir handknattleikskona Haukum. Hanna var afburðarleikmaður í liði Hauka síðasta leiktímabil og leiddi liðið til sigurs í deildarbikarnum. Hún var valin besti leikmaður Íslandsmótsins auk þess að vera lang markahæst með 212 mörk. Hanna gegndi lykilhlutverki í íslenska kvennalandsliðinu og hefur leikið 86 landsleiki. Í þessum mánuði var hún valin í úrvalslið N1-deildar kvenna eftir fyrstu níu umferðirnar.
Íþróttakarl Hafnarfjarðar 2009 er Davíð Þór Viðarsson knattspyrnumaður FH. Davíð Þór leiddi FH liðið 2009 til sigurs sem Íslandsmeistara, Deildarmeistara og Meistara meistaranna. Hann hefur verið í A landsliðshóp Íslands keppnistímabilið 2008 – 2009 og er einn besti leikmaður Íslands í knattspyrnu í dag. Fyrir stuttu síðan gékk Davíð Þór til liðs við Öster í Svíþjóð og kemur til með að leika með þeim á næstu leiktíð.


