Intersport – Hálfkarlinn 2010 fór fram í Hafnarfirði sunnudaginn 11. júlí sl í logni og sól. Að þessu sinni tóku 33 keppendur þátt, 31 einstaklingar og 2 lið. Til fróðleiks má geta þess að hálfkarlinn er 1,9 km sund, 90 km hjólreiðar og 21,1 km hlaup og mikil þrekraun. Að keppninni stóðu Sundfélag Hafnarfjarðar, þríþrautardeild með aðkomu Þríþrautarsambands Íslands og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar. Veðrið lék við keppendur og náðist góður árangur á mótinu.
Keppnin hófst í Ásvallalaug á sundinu og voru karlkeppendur frá 24 – 48 mínútur og kvenkeppendur frá 36 – 62 mínútur að synda vegalengdina. Í beinu framhaldi af sundinu stigu keppendur á reiðhjólin og hjóluðu á Krísuvíkurvegi karlarnir voru 2:21 – 3:16 klst og konurnar 2:58 – 3:32 klst að leggja vegalengdina að baki. Eftir hjólasprettinn var hlaupið hálft maraþon í Vallarhverfinu karlarnir hlupu vegalengdina frá 1:23 – 2:11 klst og konurnar þurftu frá 1:41 – 2:21 klst til að ljúka hlaupinu.
Steinn Jóhannsson Team Craft / SH / FH sigraði hálfkarlinn á 4:23:13 klst sem er nýtt Íslandsmet og glæsilegur árangur, annar varð Torben Gregersen Team Craft á 4:27:02 klst, þriðji varð síðan Hákon Hrafn Sigurðsson HFR á 4:34:06 klst.
Helga Árnadóttir ófélagsbundin sigraði hjá konunum á nýju Íslandsmeti 5:20:11 klst. Önnur varð Hulda Björk Pálsdóttir ÞrÍR á 5:27:07 klst og þriðja varð Margrét Pálsdóttir ófélagsbundin á 5:50:25 klst. Frábær stemming, metnaður og vilji leiddi til mikilla bætinga hjá mörgum keppendum og er vert að benda á heimasíðu http://triathlon.is til frekari upplýsinga um þríþraut.


