Íþróttabandalag Hafnarfjarðar

Hjólað í vinnuna Hafnarfjörður í þriðja sæti

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Hvatningar- og átaksverkefni ÍSÍ "Hjólað í vinnuna" er lokið. Hafnarfjörður endaði í þriðja sæti í keppni milli sveitarfélaga með 4380 daga og 52321kílómetra. Reykjavík sigraði með 43728 daga og 471633 kílómetra, Akureyri varð í öðru sæti með 5800 daga og 34760 kílómetra. Í keppni fyrirtækja með 400 starfsmenn eða fleiri sigraði Rio Tinto Alcan. Hrafnista í Hafnarfirði varð hlutskarpast í flokki fyrirtækja með 150 til 399 starfsmenn. Í flokki fyrirtækja með 70 til 149 starfsmenn varð Hvaleyrarskóli sigurvegari. Öldutúnsskóli sigraði í flokki fyrirtækja með 30 til 69 starfsmenn. Í flokki fyrirtækja með 10 til 29 starfsmenn sigraði leikskólinn Norðurberg og í flokki fyrirtækja með 3 til 9 starfsmenn varð fyrirtækið Prógramm sigurvegari. ÍBH óskar öllum sigurvegurum til hamingju og hvetur alla til að halda áfram að hjóla. Nánari upplýsingar og úrslit er að finna á heimasíðu verkefnisins www.hjoladivinnuna.is.