Alcan á Íslandi hf og Hafnarfjarðarbær færðu í dag fulltrúum íþróttafélaga innan ÍBH fjármuni til styrktar barna- og unglingastarfi félaganna við athöfn í höfuðstöðvum Alcan í Straumsvík. Á milli ÍBH, Alcan og Hafnarfjarðarbæjar hefur verið í gildi samningur frá árinu 2001 um stuðning við íþróttastarf félaganna fyrir 16 ára og yngri iðkendur. Á myndinni eru forstjóri Alcan á Íslandi Rannveig Rist, bæjarstjórinn í Hafnarfirði Lúðvík Geirsson ásamt fulltrúum íþróttafélaganna sem hlutu styrki.



Fimmtudaginn 6. maí var haldinn opinn fundur í samvinnu Íþrótta- og tómstundanefndar Hafnarfjarðarbæjar og Íþróttabandalags Hafnarfjaðar í Álfafelli Íþróttahúsinu við Strandgötu undir yfirskriftinni „Konur í stjórnir íþrótta- og tómstundafélaga“.




