Laugardaginn 2. apríl stendur ÍSÍ fyrir leiðbeinendanámskeiði sem gefur réttindi til kennslu í stafgöngu (skv. stöðlum Alþjóða stafgöngusambandsins).
Námskeiðið verður haldið í fundarsal ÍSÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og stendur frá kl. 9:00 - 17:00.



Í dag úthlutaði stjórn Afreksmannasjóðs ÍBH styrkjum til aðildarfélaga ÍBH vegna stórmóta á árinu 2010 samtals kr. 1.300.000 við athöfn í Álfafelli Íþróttahúsinu við Strandgötu að viðstöddum bæjarstjóranum í Hafnarfirði Guðmundi Rúnari Árnasyni, bæjarfulltrúum, formönnum, deildarformönnum og íþróttafólki þeirra félaga sem fengu úthlutað styrkjum. Alls voru þetta 20 verkefni frá 5 íþróttafélögum og 6 íþróttadeildum íþróttagreina.
Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH), Hafnarfjarðarbær og Alcan á Íslandi gerðu í gær með sér nýjan samning til styrktar barna- og unglingastarfi íþróttafélaganna í Hafnarfirði. Fyrsti samningurinn var tímamótasamningur og tók gildi í ársbyrjun 2002 til þriggja ára, heildarupphæð hans var 24 milljónir króna. Samningurinn hvetur íþróttafélögin m.a. til að ráða til sín vel menntaða og hæfa þjálfara og til gerð námskrár fyrir starfsemina með þann tilgang að efla gæði starfsins. Í nýjum samningi sem gildir til ársloka 2013 hækkaði Alcan framlag sitt um 50% úr 6 milljónum króna í 9 milljónir á ári, auk þess sem önnur framlög frá fyrirtækinu eru metin á 3 milljónir króna á samningstímanum. Framlag Hafnarfjarðarbæjar verður óbreytt næstu þrjú árin þ.e. 6 milljónir króna á ári. Heildarupphæð samningsins er 48 milljónir króna. ÍBH vill við þessi tímamót þakka bæði Hafnarfjarðarbæ og Alcan á Íslandi fyrir þennan mikilvæga stuðning og vonar að hann haldi áfram að efla frábært íþróttastarf í bæjarfélaginu. Samninginn er hægt að sjá í heild sinni á heimasíðu ÍBH undir samningar. Undirritunin fór fram á árlegri Íþrótta- og viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðarbæjar og á myndinni eru frá vinstri Ingvar S. Jónsson íþróttafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH, Gunnar Rafn Sigurbjörnsson staðgengill bæjarstjórans í Hafnarfirði, Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi og Ólafur Teitur Guðnason framkvæmdastjóri samskiptasviðs Alcan á Íslandi.




