Íþróttabandalag Hafnarfjarðar

Verkefnið "Hjólað í vinnuna" er í fullum gangi

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Dagana 6. - 26. maí 2009 stendur fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, Ísland á iði fyrir verkefninu "Hjólað í vinnuna" um er að ræða fyrirtækjakeppni um allt land. Með verkefninu er ætlunin að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Tvær keppnisgreinar og sex keppnisflokkar eru í boði. Nánari upplýsingar eru  á www.hjoladivinnuna.is

 

46. þing ÍBH

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

46. þing Íþróttabandalags Hafnarfjarðar var haldið sunnudaginn 26. apríl í Álfafelli Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði.

Alls mættu 72 fulltrúar til þingsins frá aðildarfélögunum 16. Fyrir þinginu lágu 32 tillögur og mál.

Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði ávarpaði þingið, í máli sínu kom hann m.a. inn á hversu starf ÍBH væri ómetanlegt og óskaði eftir áframhaldandi góðu samstarfi við bandalagið í framtíðinni.

Nánar...
 

Úthlutun úr Afreksmannasjóði Íþróttabandalags Hafnarfjarðar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

IMG_0117_editedÍ dag úthlutaði stjórn Afreksmannasjóðs ÍBH styrkjum til aðildarfélaga sinna vegna stórmóta á árinu 2008. Kallað var eftir umsóknum frá félögunum vegna þátttöku í stórmótum og var umsóknarfresturinn 5. desember 2008.

Á myndinni eru frá vinstri Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH, Jón Gestur Viggósson gjaldkeri Afreksmannasjóðs, Ágúst Sindri Karlsson formaður Afreksmannasjóðs og Lúðvík Geirsson bæjarstjórinn í Hafnarfirði.

Við athöfnina tók Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði til máls og bar lof á það góða starf sem íþróttafélög bæjarins inna af hendi. Mikill iðkendafjöldi og frábær árangur bera þess glökkt vitni. Hafnarfjarðarbær kemur til með að leggja sitt af mörkum við að tryggja grunnstoðir íþróttafélaganna, en eins og er verða allir að taka á sig skerðingar og leggja sitt af mörkum á meðan þjóðin vinnur sig út úr þeim efnahagsþrengingjum sem við stöndum frammi fyrir.

 

Nánar...
 

Forseti og framkvæmdastjóri ÍSÍ í heimsókn í Ásvallalaug

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
IMG_0123_editedForseti ÍSÍ Ólafur Rafnsson og framkvæmdastjóri ÍSÍ Líney Rut Halldórsdóttir heimsóttu í dag Ásvallalaug og kynntu sér þetta glæsilega íþróttamannvirki. Ásvallalaug var vígð með fjölmennri athöfn 6. september 2008. Í Ásvallalaug eru tvær sundlaugar ein 50m x 25m keppnislaug og önnur 16 2/3m x 10m kennslulaug, auk vaðlaugar, heitra potta og vatnsrennibrautar. Tvö íþróttafélög, Sundfélag Hafnarfjarðar og Íþróttafélagið Fjörður hafa æfinga-, keppnis- og félagsaðstöðu í mannvirkinu. Líkamsræktarstöðin Hress er með heilsurækt í húsinu. Auk þess má einnig nefna sjúkraþjálfun sem fyrirtækið Ásmegin rekur. Sundlaugarnar og öll aðstaða í mannvirkinu hefur verið vel sótt af Hafnfirðingum og öðrum gestum í vetur.
 
Síða 8 af 8

Íþróttafólk 2009

itrottafolk_hafnarfjarar

Viðburðir

September 2010
S M T W T F S
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Könnun

Til hvers notar þú heimasíðu ÍBH ?
 

Myndasafn

riotinto

 

Hress20300pt


234_Felix_hnappur

 

hnappur_2010

Isl_getspa_rgb

 

Vefbori

 

viti

Vefrit_front

Innskráning