Íþróttabandalag Hafnarfjarðar

12. Unglingalandsmót UMFÍ 31. júlí - 2. ágúst á Sauðárkróki

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Unglingalandsmót UMFÍ er haldið um verslunarmannahelgina ár hvert. Börn á aldrinum 11 – 18 ára mega keppa í öllum greinum sem í boði eru. Keppnisgreinar eru frjálsíþróttir, glíma, golf, hestaíþróttir, knattspyrna, körfubolti, motocross, skák og sund. Einnig er mikið lagt upp úr fjölbreyttri afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Á mótinu keppa þátttakendur fyrir sitt héraðssamband eða íþróttabandalag. Frá félögum innan ÍBH hafa 4 keppendur í motocross skráð sig til leiks, einn skákmaður, einn knattspyrnumaður, 7 körfuknattleiksstúlkur og 18 frjálsíþrótta keppendur. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu mótsins.
 

26. Landsmót UMFÍ 9. - 12. júlí á Akureyri

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Íþróttafólk úr hafnfirskum íþróttafélögum keppir á 26. Landsmóti UMFÍ sem verður haldið dagana 9. - 12. júlí á Akureyri. Körfuknattleiksdeild Hauka sendir 10 leikmenn í kvennaflokki, Badmintonfélag Hafnarfjarðar sendir 6 keppendur í badmintoni, frjálsíþróttadeild FH verður með 34 keppendur, Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar hefur skráð 12 keppendur eða 6 pör til leiks, Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar er með 4 keppendur, 3 siglingamenn frá Siglingaklúbbnum Þyt eru meðal keppenda og einn sundmaður frá Íþróttafélaginu Firði. Á mótinu keppa öll félögin undir merkjum ÍBH. Mótssetning fer fram föstudaginn 10. júlí kl. 20.00. Allir velunnarar íþrótta eru hvattir til að fylgjast með mótinu. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu UMFÍ www.umfi.is
 

Úthlutun styrkja úr Afreksmannasjóði Íþróttabandalags Hafnarfjarðar vegna ungra og efnilegra íþróttamanna

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

IMG_0270Afreksmannasjóður ÍBH úthlutaði í dag afreksstyrkjum til íþróttafélaganna í Hafnarfirði vegna ungra og efnilegra íþróttamanna á aldrinum 15 til 20 ára.

Á myndinni eru íþróttamenn frá BH, Ingvar Örn Einarsson frá Verði tryggingum og Ágúst Sindri Karlsson formaður Afreksmannasjóðs ÍBH.

Á undanförnum árum hefur árangur hafnfirskra íþróttafélaga verið glæsilegur á landsvísu. Markvisst íþrótta- og uppeldisstarf innan íþróttafélaganna er án efa lykillinn að góðri þátttöku og frábærum afrekum innan félaganna. Hafnfirskum afreksunglingum fjölgar á milli ára. Með hækkandi getustigi víkkar sjóndeildarhringurinn að öllu jöfnu hjá þjálfurum og íþróttafólki og löngunin til að bera sig saman við erlenda keppendur eykst. Til að svo megi verða þurfa bæði ríkið og sveitarfélögin að hlúa vel að ungu afreksfólki sem og einnig að þeim sem lengra eru komnir. Úthlutun sem þessi á að vera skref í þá átt.

Nánar...
 

Alcan á Íslandi og Hafnarfjarðarbær styrkja barna- og unglingastarf íþróttafélaganna í Hafnarfirði

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Í dag fór fram í höfuðstöðvum Alcan á Íslandi hf í Straumsvík athöfn þar sem fulltrúar Alcan og Hafnarfjarðarbæjar færðu fulltrúum íþróttafélaganna innan vébanda ÍBH fjárframlög til styrktar barna- og unglingastarfi félaganna. Á milli ÍBH, Alcan og Hafnarfjarðarbæjar hefur verið í gildi samningur frá árinu 2001 um stuðning við íþróttastarfið. Stuðningurinn var upphaflega 8 milljónir á ári með fjögurra milljón króna framlagi Alcan annars vegar og frá Hafnarfjarðarbæ hins vegar. Árið 2005 varð þessi upphæð 10 milljónir með 5 milljón króna framlagi frá hvorum aðila. Í árslok 2007 var samningurinn endurskoðaður. Frá og með árinu 2008 varð framlagið 12 milljónir, hvor aðili leggur til 6 milljónir. Úthlutun upphæðarinnar er tvískipt en fyrri úthlutun fer ávallt fram að vori og er þá úthlutað 60% upphæðarinnar á grundvelli iðkendafjölda félaganna og seinni úthlutunin fer fram í desember en þá er 40% upphæðarinnar úthlutað á grundvelli menntunarstigs þjálfara félaganna og námskrár þeirra.

Nánar...
 

Vígsla á vökvunarkerfi Golfklúbbsins Keilis

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Bergsteinn_Hjorleifsson

Mánudaginn 11. maí fór fram vígsla á vökvunarkerfi Golfklúbbsins Keilis sem er sameiginlegt verkefni Keilis og Alcan á Íslandi hf. Vatnslögn með kælivatni hefur verið lögð frá álverinu í Straumsvík 1800 metra langa leið að Hvaleyrarholtsvelli. Í Staumsvík er hitinn á vatninu 20 gráður og þegar það er komið í tjörnina við 8. flöt vallarins hefur hitinn lækkað niður í 15 gráður. Volgt vatn hentar vel til vökvunar vallarins, fjórir vatnsdreifarar eru á hverri flöt. Er hér um frábært framtak að ræða, bæði endurnýting og sparnaður. Golfklúbburinn Keilir er fyrsti Golfklúbbur á Íslandi til að endurnýta vatn til vökvunar og við það sparast umtalsverðar fjárhæðir fyrir félagið.                                                                                                                                                                                                    

Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi afhenti Bergsteini Hjörleifssyni formanni Keilis vatnslögnina með formlegum hætti í félagsheimili Keilis að viðstöddum gestum.

 
Fleiri greinar...
Síða 7 af 8

Íþróttafólk 2009

itrottafolk_hafnarfjarar

Viðburðir

September 2010
S M T W T F S
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Könnun

Til hvers notar þú heimasíðu ÍBH ?
 

Myndasafn

riotinto

 

Hress20300pt


234_Felix_hnappur

 

hnappur_2010

Isl_getspa_rgb

 

Vefbori

 

viti

Vefrit_front

Innskráning