Frá árinu 2002 hefur Hafnarfjarðarbær greitt niður þátttökugjöld fyrir börn og unglinga í æskulýðs- og íþróttafélögum í Hafnarfirði. Fjölbreytni í íþrótta- og tómstundastarfi í Hafnarfirði er mikil og allir ættu að geta fundið áhugamálum sínum góðan farveg. Sú breyting hefur orðið á fyrirkomulagi niðurgreiðslunnar að staðfesta þarf þátttöku viðkomandi barns í Íbúagáttinni á www.hafnarfjordur.is Með staðfestingu í gegnum Íbúagáttina samþykkir forráðamaður barns að Hafnarfjarðarbær greiði viðkomandi félagi niðurgreiðsluna vegna þátttöku barnsins í námskeiði á vegum félagsins.



Í dag 30. september var forvarnardagurinn haldinn í fjórða skipti hjá nemendum í 9. bekkjum grunnskóla. Dagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við ÍSÍ, UMFÍ, Bandalag íslenskra skáta, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Fyrirtækið Actavis er styrktaraðili verkefnisins. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta m.a. forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum. Nemendur vinna verkefnavinnu í lítlum hópum og ræða ýmsar fyrirbyggjandi aðgerðir s.s. aukna samveru með forráðamönnum, þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi og hvert ár sem þau fresta áfengisneyslu skipti máli.
Sunnudaginn 23. ágúst varð Örn Davíðsson FH Norðurlandameistari í spjótkasti 19 ára og yngri í Vaasa í Finnlandi. Sigurkastið var 70,86m, en það er bæting hjá honum um 7,03m sem er glæsilegur árangur hjá ungmenni á stórmóti. Myndin til hliðar er af Erni á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum.
Sunnudaginn 9. ágúst var hálfur járnkarl haldinn í Hafnarfirði. 14 karlar og 4 konur tóku þátt í mótinu sem hófst klukkan níu í Ásvallalaug þar sem keppendur byrjuðu á að synda 1900 metra. Í beinu framhaldi af sundinu hjóluðu þeir 90 km og að lokum hlupu þeir 21,1 km. Frábær árangur náðist á mótinu þrátt fyrir mikla vætu, Steinn Jóhannsson var fyrstur hjá körlunum með heildartímann 4:29:53 og hjá konunum var Eva Margrét Einarsdóttir fyrst með heildartímann 5:40:02.




