Fer fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu þriðjudaginn 29. desember 2009 kl. 18.00.
Dagskrá:
1. Samkoman sett.
2. Viðurkenningar til þeirra sem urðu Íslandsmeistarar 2009.
3. Viðurkenningar til þeirra sem urðu Bikarmeistarar 2009.
4. Viðurkenningar vegna sérstakra afreka á árinu 2009.
5. Sýning.
6. Afhending ÍSÍ bikars.
7. Afhending viðurkenningarstyrkja til íþróttafélaga.
8. Úthlutun styrkja vegna íþróttastarfs 16 ára og yngri.
9. Viðurkenning til “Íþróttaliðs ársins” 2009.
10. Viðurkenningar til þeirra hafnfirsku íþróttamanna sem fram úr skara og eru hvetjandi fyrir ástundun íþrótta.
11. Lýst kjöri “Íþróttakonu og Íþróttakarls Hafnarfjarðar” 2009.
12. Veitingar.
Íþróttamenn sem hljóta viðurkenningar eru vinsamlega beðnir um að mæta í snyrtilegum félagsgöllum.



Menntamálaráðuneytið hefur frá árinu 1992 staðið að rannsókninni Ungt fólk. Í febrúar á þessu ári voru spurningalistar lagðir fyrir nemendur og fimmtudaginn 22. október voru síðan kynntar nýjar niðurstöður úr svörum rúmlega 22.000 nemenda úr 5. – 10. bekk grunnskóla af landinu öllu. Hagnýtt gildi rannsóknanna er mikið um hagi og líðan barna og unglinga. Ítrekað sýna rannsóknarniðurstöður að nemendur sem stunda reglulega íþróttir og líkamsrækt líður betur, reykja síður, eru ólíklegri til að nota vímuefni og taka þátt í neikvæðu atferli en þeir sem stunda ekki íþróttir.
Þann 15. október 1929 var FH stofnað af tíu drengjum að frumkvæði Hallsteins Hinrikssonar nýráðins leikfimikennara við skóla bæjarins. Iðkun fimleika var upphaflegur tilgangur með stofnun félagsins. Handknattleikur var iðkaður frá upphafsárum FH í lok hvers fimleikatíma, en varð ekki keppnisíþrótt fyrr en árið 1940. Árið 1934 sendi félagið í fyrsta skipti keppendur á Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum. Knattspyrnuiðkun FH-inga hófst árið 1939. Lyftingadeildin var stofnuð árið 1978 og yngsta deildin í félaginu er skylmingardeildin sem var stofnuð árið 1993.
Badmintonfélag Hafnarfjarðar var stofnað 7. október 1959 af 57 áhugamönnum um badminton. Fyrsti formaður félagsins var Árni Þorvaldsson. Fyrstu árin reyndist erfitt að halda úti æfingum vegna skorts á æfingahúsnæði. En með tilkomu íþróttahússins við Strandgötu árið 1971 kom góð uppsveifla í félagið og fer iðkendum stöðugt fjölgandi. Í dag er boðið upp á æfingar í fjórum spaðaíþróttum, badmintoni, tennis, borðtennis og skvassi. Formaður félagsins til margra ára er Hörður Þorsteinsson. Íþróttabandalag Hafnarfjarðar óskar öllum félagsmönnum í BH til hamingju með daginn og velgengni í framtíðinni. Nánari upplýsingar um afmælishátíðina er að finna á heimasíðu félagsins http:bh.sidan.is og 




