Íþróttabandalag Hafnarfjarðar

Úthlutun úr Afreksmannasjóði ÍBH

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

DSC00630Stjórn Afreksmannasjóðs ÍBH úthlutaði í dag styrkjum til aðildarfélaga sinna vegna stórmóta á árinu 2009. Kallað var eftir umsóknum frá félögunum  vegna þátttöku í stórmótum og var umsóknarfresturinn 11. desember 2009. Alls bárust umsóknir vegna 27 verkefna frá  8 íþróttadeildum 7 íþróttafélaga. Stjórn sjóðsins mat allar umsóknir styrkhæfar og er heildarúthlutun í verkefnin kr. 1.665.000. Við athöfnina kom Lúðvík Geirsson bæjarstjórinn í Hafnarfirði inn á að fá sveitarfélög með sama íbúafjölda og Hafnarfjörður ættu jafnmarga þátttakendur á Evrópu- og Heimsmeistaramótum. Myndin til hliðar er af fulltrúum félaganna sem fengu styrk. Stjórn Afreksmannasjóðs óskar öllum styrkþegum til hamingju.

 

Nánar...
 

Nýr formaður hjá Siglingaklúbbnum Þyt

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Á aðalfundi Siglingaklúbbsins Þyts sem haldinn var sunnudaginn 31. janúar sl. var kosinn nýr formaður Gunnar Geir Halldórsson. Aðrir í stjórn eru Gunnar Freyr Gunnarsson varaformaður, Andri Örn Jónsson ritari, Áskell Bjarni Fannberg gjaldkeri, Guðmundur R. Magnússon meðstjórnandi, Hallur Helgason meðstjórnandi og Ragnar Hilmarsson fráfarandi formaður, meðstjórnandi. ÍBH býður Gunnar velkominn til starfa og óskar honum velfarnaðar í starfi.
 

Ný heimasíða ÍBH

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Í gær 3. febrúar fór ný heimasíða ÍBH í loftið, síðan er ennþá í vinnslu og eru notendur beðnir um að sýna tillitssemi þanngað til heimasíðugerðinni er lokið Smile
 

Reglur um niðurgreiðslur í íþrótta- og tómstundastarf

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Hafnarfjarðarbær hefur tekið upp nýjar reglur um niðurgreiðslur á þátttökugjöldum í íþrótta- og tómstundastarf og gilda þær frá 1. janúar 2010. Reglurnar eru á heimasíðu ÍBH undir starfsemi.

 

Íþrótta- og viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðarbæjar 2009

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

itrottafolk_hafnarfjararFór fram í Íþróttahúsinu Strandgötu 29. desember. Alls fengu 493 einstaklingar viðurkenningu fyrir að verða Íslandsmeistarar með hafnfirskum íþróttafélögum á árinu 2009.
Átta hópar urðu Íslandsmeistarar í efsta flokki í eftirtöldum íþróttagreinum, skylmingum, knattspyrnu, frjálsum íþróttum, körfuknattleik, handknattleik og golfi.
Tíu hópar urðu Bikarmeistarar, þar af fimm í efsta flokki í eftirtöldum íþróttagreinum, sundi og frjálsum íþróttum. Sjö einstaklingar urðu Norðurlandameistarar í taekwondo, frjálsum íþróttum og skylmingum. Einn einstaklingur fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í þríþraut. Meistaraflokkur karla í handknattleik hjá Haukum var valið Íþróttalið Hafnarfjarðar 2009.

 

Nánar...
 
Fleiri greinar...
Síða 4 af 8

Íþróttafólk 2009

itrottafolk_hafnarfjarar

Viðburðir

September 2010
S M T W T F S
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Könnun

Til hvers notar þú heimasíðu ÍBH ?
 

Myndasafn

riotinto

 

Hress20300pt


234_Felix_hnappur

 

hnappur_2010

Isl_getspa_rgb

 

Vefbori

 

viti

Vefrit_front

Innskráning