Opinn fundur um málefnið konur í stjórnir íþrótta- og tómstundafélaga verður haldinn fimmtudaginn 6. maí í Álfafelli Íþróttahúsinu Strandgötu. Allt áhugafólk um þátttöku beggja kynja í stjórnum íþrótta- og tómstundafélaga er hvatt til að mæta á fundinn.
Dagskrá:
kl. 20:00
Margrét Gauja Magnúsdóttir formaður Íþrótta- og tómstundanefndar Hafnarfjarðar setur fundinn.
Helga Steinunn Guðmundsdóttir stjórnarmaður í framkvæmdastjórn ÍSÍ flytur erindi.
Ágústa Hera Birgisdóttir formaður Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar flytur erindi.
Kaffihlé.
Ingibjörg Hinriksdóttir fyrrum stjórnarmaður KSÍ flytur erindi.
Umræður.
Kl. 21.30 Fundi lokið.
Fundarstjóri: Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH.



Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ heldur fræðslufund um munntóbak í Hásölum, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju við Standgötu, þriðjudaginn 27. apríl 2010 kl. 20.00. Viðar Jensson verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð heldur fyrirlestur um "Munntóbaksnotkun á Íslandi" og Geir Bjarnason forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar heldur fyrirlestur um "Forvarnir okkar virka". Fundarstjóri er Leifur Garðarsson. Stjórnarfólk, þjálfarar og foreldrastjórnir íþróttafélaga eru hvattar til að mæta og kynna sér málefnið. Í orðsendingu sem Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar sendir frá sér kemur m.a. fram að mikil aukning hafi verið á notkun munntóbaks undanfarið ekki síst hjá ungu fólki sem virðist ekki gera sér grein fyrir þeirri miklu hættu sem fólgin er í notkun þess. Mikilvægt er að allir geri sér grein fyrir hættunni og séu
meðvitaðir um þær forvarnir sem geta dregið úr líkum á því að ánetjast þessari fíkn. Krabbameinsfélagið hefur gert tóbaksvarnarplagat með myndum af 14 hafnfirskum íþróttamönnum á og verður það kynnt á fundinum. Hafnarfjarðarbær hefur einnig nýlega endurnýjað bannskilti við tóbaksnotkun í íþróttamannvirkjum bæjarins. 




