Íþróttabandalag Hafnarfjarðar

Frístundabíllinn aftur af stað

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Frístundabíllinn hefur akstur 1. september á haustönn 2010. Frístundabíllinn fékk góðar móttökur á vormánuðum og sýndi vorönnin 2010 97% nýtingu á akstri milli kl. 14.40 og 19.20, því verður lagt af stað með þann tímaramma. Íþróttabandalag Hafnarfjarðar hvetur forráðamenn og íþróttafélög að taka höndum saman og hvetja til notkunar bílsins. Sala korta í Frístundabílinn hófst 24. ágúst og fer fram í gegnum íbúagátt Hafnarfjarðar á vef bæjarins, www.hafnarfjordur.is og hjá Hópbílum, Melabraut 18. Verð á korti er kr. 10.000 á barn fyrir haustönnina eða kr. 2.500 á mánuði. Samstarfsaðilar Hópbíla í verkefninu eru Hafnarfjarðarbær, Rio Tinto Alcan, Fjarðarkaup og N1. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Frístundabílsins http://www.hopbilar.is/hopbilar/fristundabillinn

 

Tímar til útleigu í íþróttasölum

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Íþróttabandalag Hafnarfjarðar leigir í vetur út tíma í íþróttahúsi Víðistaðaskóla, íþróttahúsi Setbergsskóla og íþróttahúsi Hraunvallaskóla fyrir almenningshópa. Nánari upplýsingar um lausa tíma og verð er að finna vinstra megin á heimasíðu ÍBH undir tímar til útleigu.
 

Keppendur ÍBH með glæsilegann árangur á Unglingalandsmóti UMFÍ

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Unglingalandsmt_UMF_2010_04913. Unglingalandsmóti UMFÍ sem var haldið dagana 29.07. – 2.08.2010 í Borgarnesi er lokið. Keppendur frá aðildarfélögum ÍBH voru samtals 41. Í sundi var einn keppandi frá Íþróttafélaginu Firði og einn frá Sundfélagi Hafnarfjarðar, í frjálsum íþróttum voru 19 keppendur frá frjálsíþróttadeild FH, í hestUnglingalandsmt_UMF_2010_021aíþróttum var einn keppandi frá Hestamannafélaginu Sörla, 14 keppendur tóku þátt í dansi frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar, einn keppandi tók þátt í skák og körfubolta 11 – 12 ára stráka, einn keppandi tók þátt í golfi 16 – 18 ára stráka. Eitt knattspyrnulið stráka 11 – 12 ára tók þátt með 3 keppendur auk 5 annarra keppenda sem voru einnig skráðir í frjálsar íþróttir. Á Unglingalandsmótum er aðalatriðið að vera með, dagskráin stendur saman af fjölþættri íþrótta- og afþreyingardagskrá í vímuefnalausu umhverfi þar sem öll fjölskyldan getur fundið Unglingalandsmt_UMF_2010_033eitthvað við sitt hæfi. Ef svo skemmtilega vill til að keppendur ná góðum árangri er það eingöngu enn ein rós í hnappagatið fyrir viðkomandi héraðssamband. Keppendur aðildarfélaga ÍBH náðu frábærum árangri á mótinu, dansfólk DÍH fékk samtals 23 gull verðlaun af 24 mögulegum, fjögur silfur verðlaun og þrjú brons verðlaun. Í frjálsum íþróttum unnust 17 gull verðlaun, tvö silfur verðlaun og sex brons verðlaun. Sundfólkið vann 3 gull verðlaun, 3 silfur verðlaun og 2 brons verðlaun. Ein gull verðlaun unnust í fjórgangi í barnaflokki hestaíþrótta. Í flokki 16 – 18 áraUnglingalandsmt_UMF_2010_082 stráka unnust brons verðlaun í golfi og í flokki 11 – 12 ára stráka unnust silfur verðlaun í knattspyrnu, liðið sem keppti fyrir hönd ÍBH kallaði sig Rímix og setti skemmtilegan brag á keppnina.  

 

Allir á Unglingalandsmót UMFÍ

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

ulm_merki_2010Senn líður að Unglingalandsmóti UMFÍ sem er haldið ár hvert um verslunarmannahelgina. Í ár er það haldið í Borgarnesi. Börn á aldrinum 11 – 18 ára mega keppa í öllum greinum sem í boði eru. Keppnisgreinar eru dans, frjálsíþróttir, glíma, golf, hestaíþróttir, knattspyrna, körfubolti, motocross, skák og sund. Keppnisgreinar fatlaðra eru sund og frjálsaríþróttir. Kynning verður á rathlaupi og parkour. Einnig er mikið lagt upp úr fjölbreyttri afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Á mótinu keppa þátttakendur fyrir sitt héraðssamband eða íþróttabandalag. Mótsgjald fyrir keppendur er kr. 6.000 og með því fá þeir þátttökurétt í allar keppnisgreinar. Skráning keppenda hófst mánudaginn 12. júlí og lýkur á miðnætti föstudaginn 23. júlí, skráningargátt er á heimasíðu UMFÍ. Framkvæmdastjóri mótsins er Ómar Bragi Stefánsson gsm 898-1095 og netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Verkefnisstjóri mótsins er Margrét Baldursdóttir gsm 699-3253 og netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . ÍBH hvetur aðildarfélögin til að fara inn á heimasíðu UMFÍ og kynna sér Unglingalandsmótið og vekja áhuga hjá iðkendum og forráðamönnum þeirra á þátttöku í þessari glæsilegu íþrótta- og fjölskylduhátíð. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu UMFÍ www.umfi.is.

 

Þríþrautarkeppni í Hafnarfirði

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Hlfur_Jrnkarl_11._07._2010_021Intersport – Hálfkarlinn 2010 fór fram í Hafnarfirði sunnudaginn 11. júlí sl í logni og sól. Að þessu sinni tóku 33 keppendur þátt, 31 einstaklingar og 2 lið. Til fróðleiks má geta þess að hálfkarlinn er 1,9 km sund, 90 km hjólreiðar og 21,1 km hlaup og mikil þrekraun. Að keppninni stóðu Sundfélag Hafnarfjarðar, þríþrautardeild með aðkomu Þríþrautarsambands Íslands og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar. Veðrið lék við keppendur og náðist góður árangur á mótinu.

 

Nánar...
 
Síða 1 af 8

Íþróttafólk 2009

itrottafolk_hafnarfjarar

Viðburðir

September 2010
S M T W T F S
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Könnun

Til hvers notar þú heimasíðu ÍBH ?
 

Myndasafn

riotinto

 

Hress20300pt


234_Felix_hnappur

 

hnappur_2010

Isl_getspa_rgb

 

Vefbori

 

viti

Vefrit_front

Innskráning